15.febrúar 2008
Hjá húsfreyju dregur til tíðinda
...en það verður að teljast óvanalegt miðað við núverandi lífsmynstur!!!
Jú, sú gamla fékk bréf með póstinum um daginn og ekki var um ástarbréf að ræða, því er nú ver og miður! Þvert á móti var þarna komið bréf frá tungumálaskólanum fína þar sem mér var hótað brottrekstri úr paradís! Það er ég nú hrædd um!
Orsökin er afar slök mæting...eða einungis tvær kennslustundir og skrifast það alfarið á stórstúdent heimilisins sem rúntar um á strætóbíl fram eftir öllu og kemur heim nánast undir morgun!
Ég brá þó undir mig betri fætinum á þriðjudaginn og staulaðist í skólann!
Fögnuður samnemenda minna var engu líkur og þau föðmuðu mig og kysstu líkt og um týnda soninn væri að ræða. Útundan mér sá ég einnig að Tyrkirnir hvísluðu "Allah Allah" og signuðu sig! (passar það ekki ágætlega saman?)
Síðan spratt þarna á fætur ungur maður, einstaklega vöðvastæltur og sólbrúnn...hann valhoppaði í átt til mín vippaði mér síðan í fang sér og kyssti mig innilega á einkar erótískan máta. Við riðum síðan í átt að sólsetrinu og snökkuðum saman dönsku líkt og um innfætt fólk væri að ræða.
Eða var mig að dreyma?
Ég fékk allavega bréfið ...á því leikur enginn vafi! Nú verða hendur látnar standa fram úr ermum og danskan tekin með trompi!
Eeeen....

Þessi pistill er að sjálfsögðu tileinkaður mínum ástkæra rekkjunauti! Til hamingju með afmælið!!!
Hann mun þó ekki sitja einn að allri sælunni sem því fylgir að láta tileinka sér færslu því hún elsku besta Bogga mín á stórafmæli í dag!!! TIL HAMINGJU!!!
Þetta 15.febrúar fólk getur tekið upp á ýmsu í saklausustu jólaboðum!

Smart smart og ekkert nema smart!
Búið?
ég er nú hrædd um ekki!
Elsku Vigdís! Til hamingju með afmælið, úff þú ert nú orðin svo gömul að ég geri þér ekki þann óleik að skrá þær tölur hér! Oooog þar sem ég veit að þú lest ekki þetta blogg þá óska ég tilvonandi eiginmanni þínum til hamingju með þig (og í leiðinni sjálfan sig eftir tvo daga!)
7 athugasemdir