29. september 2008 klukkan 21:47
...ef við myndum byrja að blogga... fyrst við erum flutt til annars lands og öll ævintýrin sem því fylgja rétt handan við hornið" sagði meðleigjandi minn eitt síðkvöldið fyrir þó nokkru síðan.
Eða var það ég sem stakk upp á þessu snjallræði?
Þetta sáum við sem einstakt tækifæri til þess að skrá niður minningar þessara námsára og í framtíðinni myndum við reglulega rifja upp gamlar & góðar stundir.
Ahhh...við áttræð, sitjandi við arineldinn og gætum ornað okkur við minningarnar sem allar væru geymdar á þessu fína bloggi. "Ó Elli"... myndi ég stynja ástúðlega og gjóa girndaraugum að gamalmenninu við hlið mér... "mannstu gamla daga er við þeystum um stræti Árósa á nærfötunum einum fata eins og þessi bloggfærsla segir svo skemmtilega frá?"
Nja. Eða ekki.

Þetta blogg hefur tekið aðra stefnu en upphaflega var á skránni.
Ja, ef stefnu skyldi kalla. Hér hefur nánast ekkert verið bloggað!
En nú verður breyting á!
Frá og með deginum á morgun (eða hinn) verður hér haldin dagbók og allt merkilegt og ómerkilegt skráð samviskusamlega niður okkur til yndisauka í komandi framtíð!
og þar hafið þið það!

Elli og Kristín
5 athugasemdir
5 athugasemdir