Auglýsing

Klukkan

Undirsíđukubbur

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Lćknisheimsókn á laugardegi...

26. apríl 2009 klukkan 08:15
"Træner du?" spurð'ann, hallaði sér aftur í sætinu og horfði með aðdáun á svera upphandleggi mína.
"Nej" svaraði ég og sá um leið undurnarsvip á doktornum, "hvaðan ætli hún fái þessa þreknu handleggi stelpan", hlýtur hann að hafa hugsað, klárlega sjúkur í mig.
Doktor: "En hefurðu ekki bara verið að lyfta einhverju þungu? Þetta er greinilega vöðvahnútur sem hefur orðið til við einhverja áreynslu og þú ert bara marin í kring"
Krilla: "Það er nú alveg deginum ljósara að hér er ekki um neinn vöðvahnút að ræða góði minn! Sérðu ekki að ég er illa haldin af sýkingu af völdum skógarbjöllu? Ég er með öll einkennin!"
Doktor: "þetta er ekkert í líkingu við skógarbjöllubit og auk þess er sá tími ekki hafinn, það er allt of snemmt"
Krilla: "En þetta er rautt með hvítum blett inn í"
Doktor: "þetta er ekki rautt, þetta er fjólublátt og hvíti bletturinn er vöðvahnútur eins og ég sagði"
Krilla: "en þetta er búið að stækka"
Doktor: "það er bara því marið er að færast neðar og svo dofnar hann fljótlega"
Krilla: "er ég þá bara með marblett?"
Doktor: "jebbsörí!"

Miðað við fyrri reynslu hér í danzka þá fannst mér alveg dæmigert að þessi:



væri mætt í heimsókn fyrst að rotturnar væru farnar.

Ég fór í svolítinn stúlknagleðskap á föstudaginn og varð dömunum fljótlega starsýnt á marblett einn sem birtist skyndilega fyrir rúmri viku síðan á upphandlegg hægri handar minnar (ekki eftir neitt áreynslupúl þó). Við fórum á stúfana og fundum út að þetta væri Skógarbjöllubit sem getur verið skaðlegt mjög og stundum banvænt því þær geta borið með sér taugalömunarsjúkdóm. Kvendýrið verpir auk þess eggjum sem síðan klekjast út inni í líkama viðkomandi bjöllubitshafa (sem var hún ég í þessu tilviki). Hringt var í lækni úr geiminu góða sem sagði að ágætt væri að láta líta á þetta og ef um skógarbjöllubit væri að ræða yrði skrifað upp á sýklalyf fyrir mig.... en ég gæti bara farið til læknis bara svona einhverntímann þegar ég nennti, ekkert stress og Krilla bara hress! Eða ekki! Ég reykspólaði af stað á slaginu 7 morguninn eftir, eftir svefnlausa nótt og snaraði mér dauðvona í stólinn hjá lækninum. Ég rétt hafði kraft til þess að bretta upp ermina og leyfa honum að berja herlegheitin augum.

...Framhaldið hefur verið útskýrt hér að ofan...




Kristín Edda
11 athugasemdir