Auglýsing

Klukkan

Undirsíðukubbur

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Má maður þetta bara?

11. september 2009 klukkan 20:47
Jeg er en 51 år gammel singlefyr, velholdt, spændende, alternative, humörfyldt. Jeg er meget glad for mit singleliv, har absolut intet önske om fast relation, söger en at dele ömhed, nærhed, nydelse og masser af god sex med. Spring på, du vil ikke fortryde!!!

Útleggst svo á ástkæra ylhýra:

Ég er 51 árs gæi á lausu, í góðu formi, spennandi, góður kostur, spaugsamur. Ég er mjög ánægður með piparsveinslífið og hef aldeilis ekki áhuga á föstu sambandi. Ég er að leita að aðila til að deila ástúðlegri hlýju, nálægð og nautnum með, að ógleymdu brjálæðislega miklu kynlífi! Láttu slag standa, þú munt ekki sjá eftir því!!!


Það skal tekið fram að þetta ku ekki vera ástarbréf sem ég fékk sent með póstinum þó mig undri auðvitað ekki að þið hafið þegar í stað dregið þá ályktun.
En nei.
Þetta var í einkamáladálki í vikulegu fréttablaði Árósa og nágrennis.
Takk fyrir takk.
Kristín Edda
3 athugasemdir

Back in the game...

05. september 2009 klukkan 08:47
Jú sæl!

Og nú dregur til tíðinda.

Húsfreyja hefur ákveðið að nú sé nóg komið af hiki, hökti og bjöguðum framburði þessa íðilfagra danska tungumáls.

Fyrsti tíminn í tungumálaskólanum var á fimmtudaginn. Ég er komin í nýtt námskeið sem leggur mesta áherslu á framburð. Hitt námskeiðið sem ég var skráð í (áður en ég tók mér sumarfrí fyrir einu og hálfu ári síðan) var í bland framburður og málfræði og nemendur frá öllum heimshornum. Þetta nýja er bara fyrir fólk með Norðurlandamál sem móðurmál. Við vorum fimm mætt. Ég, tveir svíar, einn Norsari og spænsk kona sem hefur búið bæði á Íslandi og í Noregi og talar íslensku/norsku í bland og skilst ágætlega bara.

Ég neyðist til að viðurkenna hérna frammi fyrir sjálfri mér og dyggum lesendum (þó aðallega sjálfri mér) að ég var langsamlegast sú albesta í dönsku þarna inni. Fyrir utan kennarann...ja, og þó?

Við vorum látin gera ýmsar framburðaræfingar og síðan tala saman tvö og tvö (sú spænska vildi ekki sjá að vera með). Ég og Norsarinn spjölluðum um sumarfríin okkar og hann var ekkert að hafa fyrir því að skrolla errið heldur sagði hann bara bjerrrrg og Norrrrge og svo framvegis. Og smitaði mig. Áður en ég vissi af var ég farin að segja íslenskt/norskt errr eins og ekkert væri sjálfsagðara. Spurði hann til dæmis: "Hvorhen i Norrrrge?" En hann skyldi mig mæta vel og var hinn kátasti með þetta allt saman. Þangað til við fengum að hlusta á herlegheitin sem kennarinn hafði verið svo sniðugur að taka upp á snældu. *kjánahrollur* :)

Sem betur fer kom kaffipása og var ég samferða sænskum pilt í kaffiteríuna.

"Ved du hvad? Jok sjender en flíkka som prottar islandsk og hun har...ble bla protta protta protta..bla ble flíka pojke flíka pojke ... hej alle jobba..." ...og svona lét hann móðan mása um eitthvað sem ég átti erfitt með að skilja þangað til ég sagði á fagurri danskri tungu: "snakker du svensk med mig?"

"Ó sorrí" sagði kauði og svissaði yfir í ensku.

Mjög ákafur greinilega í að æfa sig í dönskunni.

En þetta var skemmtilegt mjög og hyggst ég venja komur mínar á Vesturgötuna hvert fimmtudagskvöld í vetur og protta svensku, snakke dansk og spík a little bit einglísh maybe I will throw in a little bit Norsk ef ég verð í stuði. Jesús hvað ég er fjölhæf og frábær!


Húsráð mánaðarins á einstaklega vel við (amk hér í DK þessa dagana) og mun vera svohljóðandi:

Ef svo óheppilega vildi til að þér eður einhver í fjölskyldu yðar fengi geitungastungu er heilladrjúgt að strá sykri yfir stunguna (eður sykurmola) og líma niður með plástri.

Það hefði ég nú haldið.
Sæl að sinni.

Kristín Edda
4 athugasemdir