Auglýsing

Klukkan

Undirsíðukubbur

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Ástir og átök í SVR... 24. sena taka tvö action

21. nóvember 2009 klukkan 12:19
Steini græni þrýsti Hörpu í bókhaldinu þétt upp að sér og hvíslaði angurvært í eyra hennar:

"Það líður ekki sú stund að ég þakki ekki Guði fyrir að við hittumst í strætó þarna forðum"

Harpa slítur sig lausa og hreytir í græna goðið:

 "Þú skalt ekki halda það að karlmannlegir tilburðir þínir og lipur tunga þín fái mig ofan af mínum skoðunum, ertu búinn að stinga upp á því við starfsfélaga þína að þið sötrið bara vatn og sleppið öllu kaffi og kleinum á fundum?"


Steini græni lætur sig falla aftur á bak á tvíbreiða kóngarúmið sitt en reisir sig svo upp á olnbogana og horfir á drottningu sinna drauma, hann er augljóslega sár þegar hann segir: "ég skil ekki hvers vegna þú þrjóskast svona við, gefðu þig á vald grænna gúmmelaðigæja og hættu þessu kjaftæði, það er ég sem sé um niðurskurðinn!"


Harpa í bókhaldinu á mjög erfitt með að standast þetta goð.
Hvað á hún að gera?
Á hún að hlusta á hjartað og láta allt eftir þessum valdamikla manni?

þessum vöðvastælta og vel máli farna manni,

þessum yndisauka,

þessum súkkulaðihúðaða hunangskodda?

...Og hvað um Nonna og smíðaverkstæðið?


Hún fann að líkaminn vildi að hún veldi Steina græna en hjartað var í vafa.
 
Hvað átti hún til bragðs að taka?

Hún vissi að hún yrði að taka ákvörðun og það strax... en hvað?

en hvað?

Ó! Grimma veröld, hvað átti hún til bragðs að taka?




Kafli úr bók sem ég var að lesa. Mjög góð og æsispennandi. Mæli með henni.
Kristín Edda
6 athugasemdir

Nóg að gera í bransanum...

01. nóvember 2009 klukkan 11:47
Þá er maður bara kominn í svaðalegan bissness hér í Vosnæs!

Frá sunnudegi fram á fimmtudag bakaði ég fjórar kökur eftir pöntun...

Fyrsta kakan átti að vera kastali sem 6 ára gömul yngismær pantaði fyrir afmælispartý sem hún hélt fyrir vini og fjölskyldu á fögrum sunnudegi...





Önnur kakan var Barbiekaka sem 6 ára gömul pæja pantaði fyrir bekkjarpartý sem hún hélt á heimili sínu á mánudegi eftir skóla





Þriðja kakan var graskerskaka sem 6 ára stúlka í nornarbúning pantaði fyrir Halloweenpartý í skólanum sínum, hún ákvað reyndar að slá um sig og auk graskerskökunar lagði hún inn pöntun fyrir köku númer fjögur, kóngulóarvef!









Eini mínusinn í þessum brjálaða kökubissness er sá að hér er um einu og sömu 6 ára stúlkuna að ræða og hún er því miður ekki borgunarmanneskja - hvorki fyrir hráefni né vinnunni sem lögð var í þessar fjórar kökur.

Ó well...
Kristín Edda
8 athugasemdir